Upplýsingaöryggistefna

Tilgangur 

Upplýsingaöryggisstefna One Systems (hér eftir One) styður við samfelldan rekstur og þjónustu og lágmarkar þannig rekstraráhættu og hámarkar öryggi verðmæta í eigu og umsjón fyrirtækisins.  

Umfang 

Upplýsingaöryggisstefnan er bindandi fyrir allt starfsfólk og nær til allra lögaðila sem veita One þjónustu. Stefnan nær einnig til reksturs og aðstöðu ásamt allra kerfa, hug- og vélbúnaðar sem er í eigu One sem nánar er tilgreint í staðhæfi um vottun. 

Markmið 

One veitir viðskiptavinum sínum örugga og trausta þjónustu með því að: 

Sjá til þess að þjónusta sé ávallt aðgengileg fyrir viðskiptavini. 

Tryggja öryggi upplýsinga og verðmæta í eigu og umsjón One. 

Búa starfsfólki og viðskiptavinum öruggt umhverfi og stuðla að aukinni vitund um upplýsingaöryggi. 

Tryggja hlítingu við lög og reglur er varða meðhöndlun upplýsinga og samninga sem One hafur gert.  

Framkvæmd og ábyrgð 

Framkvæmdastjóri sér til þess að upplýsingaöryggisstefnunni sé framfylgt með því að setja markmið og reglur og tryggja viðeigandi ráðstafanir til að framfylgja þeim.

Stefnan felur í sér skuldbindingu um stöðugar umbætur á stjórnun upplýsingaöryggis. Framkvæmdastjóri getur falið stjórnendum eftirfylgni með tilteknum ákvörðunum og verklagsreglum. 

Stefnan felur í sér skuldbindingu um stöðugar umbætur, reglulegt mat á áhættu og markviss viðbrögð við öryggisatvikum til að tryggja öruggan og traustan rekstur. 

Allt starfsfólk og þjónustuaðilar eru skuldbundin til að vernda upplýsingar og kerfi gegn óheimilum aðgangi, notkun, breytingum, uppljóstrun, eyðileggingu, glötun eða flutningi. Aðilar sem brjóta gegn upplýsingaöryggisstefnu One eiga yfir höfði sér áminningu í starfi, uppsögn eða að beitt verði viðeigandi lagalegum ráðstöfunum allt eftir eðli og umfangi brots 

Endurskoðun 

Endurskoða skal upplýsingaöryggisstefnu þessa á minnst þriggja ára fresti eða ef breytingar verða á skipulagi eða starfsemi One. Stefnuna skal kynna fyrir stjórn og samþykkt af framkvæmdastjóra. 

 

Reykjavík, 23.02.2026  

Framkvæmdastjóri