Gæðastefna OneSystems

Gæðastefna

Grundvallarmarkmið One Systems Ísland ehf (hér eftir One) er að vera í fararbroddi og leggja áherslu á gæði á sviði hugbúnaðar og þjónustu fyrir mála- og skjalakerfi.

One stefnir að því að vera leiðandi á sínu svið og hefur á að skipa velþjálfuðu, hæfu og ánægðu starfsfólki.

Til að ná settu markmiðum mun One vera með starfrækt og vottað ISO 9001:2015 gæðakerfi.

Til að framfylgja gæðastefnu leggur One áherslu á:

  • Aðlaga starfsemi og stefnumótun One að gæðastjórnunarkerfi ISO 9001: 2015.
  • Uppfylla kröfur viðskiptavina sem og viðeigandi laga og reglna.
  • Skilgreina gæðamarkmið og ábyrgð starfsmanna.
  • Ná fram stöðugum umbótum á gæðastjórnunarkerfi ISO 9001: 2015.
  • Leggja áherslu á að standa við gefin loforð um vöru og þjónustu.
  • Auka ánægju viðskiptavina.
  • Fylgjast með þróun og nýjungum á upplýsingatæknimarkaðnum.
  • Tryggja reglulega þjálfun og fræðslu starfsmanna.
  • Tryggja reglulega vöktun á árangri birgja.
  • Tryggja að stefnumótun og verklagsreglur endurspegli starfsemi One.

Framkvæmdastjóri, eða gæða- og öryggisstjóri í umboði hans, ber ábyrgð á því að upplýsa alla starfsmenn og ytri aðila um gæðastefnuna og gera hana aðgengilega almenningi.